Um leið og ég þakka ykkur fyrir samstarfið í vetur og ekki síst lokatónleikana okkar s.l. laugardag, þarf að koma á framfæri einni tilkynningu.
Hjá Sigrúnu Viggósdóttur eru í óskilum gulur tappatogari (m. skrúfu) og tautaska, grá og svört. Þetta hefur orðið eftir hjá henni eftir samkomuna þar á laugardagskvöldið. Þeir sem sakna þessara hluta hafi samband við Sigrúnu.
Ef við verðum beðin að syngja á hátíðahöldunum þann 17. júní verður það boðað þegar þar að kemur.
Bestu kveðjur, Eggert.
Það er venjubundin æfing í kvöld, 24. apríl, altrödd á að koma kl. 19:00, aðrir kl. 19:30.
Helgina 5. og 6. maí ætlum við í ferðalag til Stykkishólms og Hólmavíkur.
Laugardaginn 5. frá Ísafirði kl. 9, ekið með hæfilegum stoppum sem leið liggur til Stykkishólms.
Sungið þar í kirkjunni kl. 17:00.
Kvöldverður á hótelinu eða Narfeyrarstofu.
Gist á Hótel Stykkishólmi. Verð á mann í 2 manna herbergi 8000 kr, í eins manns herbergi 13.000 kr., morgunverður innifalinn.
Sunnudaginn 6. frá Stykkishólmi kl. 11 áleiðis til Hólmavíkur.
Sungið þar í kirkjunni kl. 16:00.
Hugsanlega léttur málsverður eftir tónleika og fyrir akstur heim.
Kórfélagar eru beðnir að segja hvort þeir geta komið í ferðina á æfingu kvöldsins.
Kveðjur frá stjórninni.
Það er venjubundin æfing í kvöld, þriðjudag 10. apríl, kl. 19:30 í Hömrum.
Kv., frá form.
Framundan er annasöm vika hjá okkur. Vonandi geta sem flestir tekið þátt í þessum verkefnum og þar með talið að fá tíma til að baka fyrir kökubasarinn 
Mánudaginn 2. apríl kl. 17:15, koma þeir sem mögulega geta í Ísafjarðarkirkju að taka þátt í upptöku á laginu hans Halldórs Gunnars Pálssonar, Íslandi.
Þriðjudaginn 3. apríl kl. 19:30, æfing í Hömrum. Munið að koma með bæði vorprógrammið og það sem sungið verður með Páli Óskari.
Fimmtudaginn 5. apríl kl. 11:00 í Hömrum, æfing með Páli Óskari.
Föstudaginn 6. apríl kl. 11:00 í Hömrum, æfing með Páli Óskari.
Föstudaginn 6. apríl kl. 20:00 í KNH skemmunni Grænagarði, tónleikar með Páli Óskari á Aldrei fór ég suður !!!
Laugardaginn 7. apríl kl. 14-16, kökubasar í Bónusi.
Kv., frá stjórninni.
Já, það er æfing á morgun, Sprengidag. Venjulegur staður og stund 
Kv., formaður.


